Sælt veri fólkið. hjá mér er fínt að frétta bara, er búin að vera samt frekar slæm í hausnum í dag en er sem betur fer að lagast núna, komst ekki einu sinni á aukavakt sem mér var boðið í kvöld, frekar súrt það.. en það sem hefur gerst hjá mér síðan síðast er nú kannski ekki mjög mikið þannig séð, er búin að vera að vinna og í ræktinni..
ég og mamma fórum á Sauðárkrók til tannsa síðasta þriðjudag og fórum á Skagaströnd þegar við vorum búnar þar..fór í kirkjugarðin og settum upp ljósakrossana hjá pabba, Selmu ömmu og Þórarni frænda..ég setti líka jólakrans sem ég set alltaf upp hjá pabba mínum hver jól..það er alltaf svo notalegt þegar maður er búin að setja krossana upp, eitthvað svo hlýlegt finnst mér..ég kveikti líka á kerti hjá pabba, gekk hálf illa að fá það til að loga en ég fór ekki fyrr en það tókst..við fórum til Hrönn og báðum hana að setja svo kerti á leiðin hjá þeim yfir jólin..gott að vita að það verður sett hjá þeim kerti..
Guðrún Eyja kom heim í dag vííí og svo kemur Helga Rós heim á sunnudagin víííí...eða Helga fer beint suður samt en kemur aftur 17 des vííí hahaha, þá getum við kannski hestast eikkað saman...vona að ég geti nú hitt þær eitthvað á meðan þær eru hérna heima ...
Carla l.amma hefði átt afmæli í dag, man alltaf eftir því að einu sinni á afmælisdaginn hennar þá vorum við pabbi á Króknum og ákváðum nú að kíkka til hennar uppá dvalarheimili og gefa henni konfekt í tilefni dagsins, gleymi því aldrei hvað amma var ánægð að sjá hann pabba, henni fannst alltaf svo gaman að hitta hann
ég fer í klippingu og litun næsta þriðjudag og ég get varla beðið því mig hlakkar svoooo til..er komin með svakalega mikla rót get ég sagt ykkur ..
Sóley Magnúsdóttir kveður
12. desember 2008 klukkan 21:58
Sóley Magnúsdóttir 2 athugasemdir
loksins hafði ég mig í það að henda inn bloggi hérna, ALLTOF langt síðan ég bloggaði síðast, úfff!!! en ég ætla að blogga núna, betra seint en aldrei, eða svo er sagt
það sem hefur verið að gerast hjá mér er að ég er flutt heim á HVT aftur, ástæða þess er sú að ég var komin í svo litla vinnu og fann mér ekki aðra vinnu..frekar erfitt að vinna vinnu á AK núna..þannig að ég ákvað að fara heim á HVT aftur..það er fínt, þótt það sé frekar lítið að gerast hérna, en maður finnur alltaf eitthvað að gera.. ég er að vinna núna eitthvað á spítalanum í desember, fékk slatta af vöktum sem er mjög fínt..þannig að maður fær kannski ágætis útborgun næstu mánaðarmót..verð svo eitthvað þar eftir áramót, en veit ekki hversu mikið.. ég ætla að hafa hesta eftir áramót, alla vega Sveiflu og Von, er ekki búin að ákveða hvort ég taki Tuma inn strax, kemur í ljós, gæti verið að ég taki hann bara inn mánaðarmótin mars/apríl ég er að hugsa um að fara aftur og keppa á Svínavatninu á Sveiflu, alla vega stefna að því, var svo gaman í fyrra.. ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar, nema á eftir að kaupa pínku í eina gjöfina..er meira að segja búin að pakka öllum inn ...hahaha ég verð að passa mig að segja ekki Daða hvað er í pakkanum því hann spyr mig alltaf hvað sé í honum, svo mín heppni að glopra því útúr mér hahaha...hahah hann hefur held ég lúmskt gaman af því að spurja mig.. ég fór suður um dagin, var í rúma viku hjá ömmu og afa..hitti fullt af vinunum mínum sem búa í bænum og það var geggjað að hitta þau...takk fyrir geggjað skemmtileg kvöld krakkar hvað get ég sagt ykkur meira...hummm... ég er á fullu í að hreyfa mig..er í ræktinni á spítalanum þessa dagana, það er ekkert mikið af tækjum þar en samt alveg nóg fyrir mig..ég er búin að ná af mér 5 kílónum og er ég bara nokkuð sátt við það...ætla samt að ná af mér fleirum er að hugsa um að láta þetta duga í bili
Sóley Magnúsdóttir kveður
07. desember 2008 klukkan 19:36
Sóley Magnúsdóttir 2 athugasemdir
ég ákvað að halda mig við bloggar.is, æi ég var ekki alveg að nenna að læra á þetta 123.is blogg þannig að ég hef ákveðið að vera með þetta blogg bara áfram
en það er ágætt að frétta hjá mér..ligg reyndar nánast bara í rúminu núna því ég vaknaði í morgun ekki alveg nógu góð í höfðinu og er með vott af mígreni núna..þannig að ég ákvað að sleppa vinnunni í kvöld og jafna mig alveg á þessu..það er svo vont að fara í mikið axjon þegar maður er svona í hausnum..þá líka bara versnar kastið oft..
setti nýja mynd hérna á síðuna hjá mér..þetta er ég, pabbi og Píla okkar. hahah takið eftir rabarbaranum sem ég held á þetta var nú ekki sjald séð sjón þegar ég var stödd á Fellsbraut 4 hjá ömmu og afa að ég var með rabarbara í hendinni..
er búin að vera heima á hvt hjá mömmu og helga síðustu viku, það var ekkert smá gott, en þannig var að ég var á skyndihjálparnámskeiði á vegum spítalans..þetta var mjööög fróðlegt og lærdómsríkt að fara á þetta námskeið og er maður mun fróðari um það hvað á að gera ef maður kemur t.d af mikið slösuðu fólki eða já ef það stendur í einhverjum..nú er bara að bíða eftir að fá skírteinið um að maður hafi verið á þessu námskeiði..
ég er mikið að velta fyrir mér hvað ég á að gera eftir áramót..þar sem ástandið er svona eins og það er í þjóðfélaginu í dag..það er ekki auðvelt að fá vinnu hérna á akureyri, það er s.s búið að minnka við okkur vinnuna þar sem ég vinn og lækka launin og það dugar manni ekki til að lifa og borga leigu og aðra reikninga..þannig er að maður þarf að hugsa sig tvisvar um hvað maður ætlar að gera..hvort maður eigi að halda áfram að vera hérna eða jafnvel hreinlega bara fara heim á hvt og vinna þar og reyna að safna sér einhverjum pening..en þetta kemur allt í ljós á næstunni hvað maður ákveður að gera..
ég er að spá í að skreppa suður næsta fimmtudag eða föstudag..langt síðan maður hefur hitt famelíuna þar, svo er mig alveg rosalega mikið farið að langa til að sjá litla sæta frændann minn hann Sveinbjörn Högna, hef ekki séð hann síðan hann var skíður 31 ágúst ..sem er ALLTOF langt síðan !!!! en það fer allt eftir því hvort ég fæ einhverja aukavinnu heima á hvt eða ekki..
en ég ætla að hvíla mig smávegis núna því hausin er að fara með mig!!
Sóley Magnúsdóttir kveður og óskar að dagarnir verði fljótari að líða
15. nóvember 2008 klukkan 19:16
Sóley Magnúsdóttir 3 athugasemdir
þetta segir vísan um hann Grím kallinn og á vel við að þilja hana upp í veðri sem þessu..þetta er nú meira að skella þessu veðri bara sísvona á og maður er ekki einu sinni búin að athuga hvort vetrardekkin séu í lagi eftir sumardvölina..en ske kynni að mamma og Helgi komi næsta laugardag og þá ætla þau að kippa þeim með..kannski maður fái þau til að gista eina nótt og gera eitthvað skemmtilegt saman það væri gaman..
ég og Helga fórum aðeins upp í Samtún (erum með hestana þar) og settum hestana inn, þeir voru alveg skjálfandi á beinunum greyin..voru sko dauðfegin að komast inn..mér sýnist á öllu að við förum ekkert á bak í dag ef það verður svona kuldi og hríð í dag..
það er bara frí hjá mér í vinnunni þangað til á föstudaginn ..þannig að maður getur farið í ræktina og hestbak alla dagana í þessari viku..sem er bara geggjað..það er að segja ef veðrið verður til friðs..
Rósirnar mínar potuðu sér útaf á laugardagskvöldið..sem betur fer voru þær ekki komnar langt í burtu frá því ..mamma og Helgi voru hetjur og redduðu málunum og þakka ég þeim kærlega fyrir það vonandi fara þær nú ekki að gera þetta að vana sínum því það er mjög stutt fyrir þær að fara inn á HVT..það væri örugglega ekki vinsælt ef allt í einu væru bara komnar tvær hestadömur fyrir utan kaupfélagið ..hahaha verð að reyna að semja við Inga frænda á Tindum um að fá að hafa þær hjá honum á meðan þær eru að vaxa úr grasi..það er bara ómögulegt að eiga ekki jeppa til að draga kerru til að skutla þeim ...vona að ég vinna bráðum fullt af peningum og að kreppukvikindið hætti svo ég geti keypt mér jeppa og hestakerru
Sóley Magnúsdóttir kveður á leiðinni í ræktina
20. október 2008 klukkan 13:42
Sóley Magnúsdóttir 1 athugasemd
eigum við að ræða það eitthvað hvað dagvaktin er að meika það, já sælllllll.... "hvar er lykililin" "þetta er bara enn ein guggan, kallin er sko komin í úrvalsdeildina" "óli eigum við að fá okkur svo svoldið gott í kroppinn" ...kræst ég bara dýrka þessa þættien ætli maður hendi ekki inn nokkrum línum um það hvað er búið að vera að gerast þessa síðustu og verstu daga
* s.s hestarnir eru komnir og það er búið að fara nokkru sinnum á bak, Von er farin að tölta er bara nokkuð sátt við hvernig það gengur hjá mér að töltsetja hana.
* það gengur bara fínt í vinnunni, rosalega góður mórall í vinnunni.
* Rósirnar mínar eru komnar inná HVT, þær voru víst óþekkar og voru að fara á girðingarnar og vesen..þannig að ég ákvað að taka þær inná Tangann í bili..
* afi átti afmæli í gær, varð 76 ára gamall kallinn..hringdi í hann og hann sagði mér að nafni sinn (Sveinbjörn Högni) hefði komið í heimsókn og verið með afmælisköku með
* var að vinna á sjúkrahúsinu núna, tók 4 vaktir, fínt að vinna nokkrar vaktir svona af og til svo maður gleymi nú engu.
* er að hugsa um að kaupa mér kort í ræktina á morgun, fara að pústa smávegis..finn að ég þarf að koma út svo mikilli orku..
* er ein heima núna, Helga og Eyjó koma á morgun því það er frí í skólanum.
* fékk rosalega góðan mat hjá mömmu í gær, nammi namm..hún er best í heimi...elska þig mamma..
* meira síðar
Sóley Magnúsdóttir kveður, þreytt eftir helgina.
12. október 2008 klukkan 23:35
Sóley Magnúsdóttir 3 athugasemdir
Sælt veri fólkið..ég ligg eins og klessa uppí rúmi núna, var að koma úr heitri og góðri sturtu...og það er bara næs.. hestarnir komu á AK í gær og voru mikil gleðilæti í mér og Rósinni þegar við fengum þau í "hendurnar" ..svo þegar Rósin var búin í skólanum kl 4 í dag þá var bara hent sér í hestadressið og farið í hesthúsin við byrjuðum á því að sækja þau og setja inní hesthús því við fórum að járna..Rósin járnaði stóra rauða klárinn sinn, sem btw er til sölu og ef þið viljið upplýsingar um hann þá hafi þið bara samband við hana , en alla vega þá gekk vel að járna hann, stilltur og prúður á meðan...en aðra sögu er hægt að segja um hana Von blessaða, það voru bara slagsmál og læti að koma einni skeifu undir hana, við fengum nú samt fína hjálp frá honum brosmilda Hjálmari og þakka ég honum kærlega fyrir þessa hjálp en Von lét undan, LOKSINS, og þá gekk þetta ágætlega.. svo á morgun á bara að skella sér á bak, vá hvað ég hlakka mikið til..finnst svoooo æðislegt að þá séu komin, og finnst líka æðislegt að Rósin mín hafi lánað mér tvo hesta takk ógó mikið fyrir það esskan!
en já laufskálaréttarballið var um helgina og það var bara mjög gaman..hitti fullt af gömlum og góðum vinum, sem var geggjað..góð tónlist og bara mjög fínt..nema það var eitt sem setti svartan blett á þetta ball var að það voru þvílík slagsmál í endan og þurfi að horfa uppá það að sjá vin minn barinn, það var ekki gaman hann varð alblóðugur og endaði í sjúkrabíl...hata slagsmál!!!
en vá það er bara að koma október, já sæll, tíminn líður svo svakalega hratt..verða bara komin jól áður en maður veit af!!
Sóley Magnúsdóttir kveður með hófalykt á höndunum sem vill ekki fara
30. september 2008 klukkan 22:20
Sóley Magnúsdóttir 9 athugasemdir
sökum þess að ég get ekki sofnað ákvað ég að henda inn smá bloggi og athuga hvort ég þreytist við það..
hvað get ég sagt ykkur..humm..
litli fallegasti frændi minn fékk stórt og fallegt nafn, Sveinbjörn Högni Blöndal..þetta er sko ekki slæmt nafn á flottar strák..þessi litli frændi er svo fallegur að ég bara kemst ekki yfir það..
það sem hefur drifið á mína daga er það að ég hætti í hagkaup og fór að vinna á Friðriki V. það er flottasti veitingastaðurinn hérna á AK..svaka flottur staður og ekki er nú hægt annað en að segja að það sé mjög gott að vinna þarna, rosa fínt samstarfsfólk og allt mjög fínt bara..Helga er reyndar að vinna þarna líka, en við erum nánast ekkert að vinna saman, þannig að við ættum ekki að drepa hvor aðra haha... ég er búin að vinna 4 vaktir og leggst þessi vinna bara mjög vel í mig..fer svo að vinna aftur á fimmtudaginn..
mig hefur verið að dreyma illa síðustu vikuna, mig hefur dreymt svipaða drauma, sem eru s.s veruleikin, eða ég held það í draumnum og allan tíman á meðan draumurinn er þá er ég að reyna að komast úr honum, ég berst við það eins og ég eigi lífið að leysa..það gengur alls ekki vel..æii veit ekki hvernig á að útskýra þetta..alla vega þá finnst mér þetta mjög óþægilegt og vil ekki hafa þetta svona, er orðin hálf stressuð þegar styttist í háttatíman hjá mér og þori varla að sofna..því alltaf dett ég í þennan draum aftu rog aftur..þetta er hreinn viðbjóður bara..veit ekki hvað ég á að gera í þessu..hreinlega alls ekki..
Von kemur líklega á AK núna eftir helgi, það verður fínt að fá hana, komast á hestbak og geta verið einn með sjálfum sér og talað við Von um allt, án þess að fá svar.. svo eftir áramót kem ég með Sveiflu og verð líklega áfram með Von..þarf að halda vel áfram með hana.. Tumi fær bara að vera í vetrarfríi og svo tek ég hann aftur í vor..
andarnefjurnar eru alltaf jafn skemmtilegar, maður getur alveg gleymt sér við að horfa á þær þarna úti á pollinum..skemmtilegar skeppnur..
Laufskálaréttir eru næstu helgi og ætlum við Rósin að skella okkur, fara í réttir og svo á ball um kvöldið...eitt að bestu böllum ársins ..það verður vonandi bara gaman og ekkert vesen, hata þegar það eru slagsmál og þannig rugl..
bíllinn minn er til sölu, samt ekkert svona formlega, en ef ég fæ kaupanda þá sel ég hann.. svo er ég líka með hnakk til sölu..og já Von er til sölu líka..alveg fullt til sölu ....
en best að hætta þessu núna Sóley Magnúsdóttir sem er hálf smeik við að sofna
24. september 2008 klukkan 01:51
Sóley Magnúsdóttir 8 athugasemdir
greinilegt að það sé sumar, þar sem bloggheimarnir eru hálf dauðir eitthvað..en þar sem ég er hjá Guðrúnu Eyju núna og við erum bara að chilla svona rétt fyrir svefnin þá ákvað ég að rita smávegis hérna í ganni mínu..
alla vega þá er ég á HVT og verð hérna í sumar og svo ak í haust, vonandi alla vega..
ætla að reyna að klára þennan helv stúdent, það er að segja ef ég get það sökum stærðfræðinnar, þarf að fá undanþágu með hana svo ég geti útskrifast, ef ég fæ hana ekki þá er ég ekkert að fara að útskrifast...sem er mest ósanngjarnt í heimi..en það kemur í ljós þegar ágúst gengur í garð..
ég er með bilaða hendi núna, sökum þess að ég brákaðist í vetur þegar meri henti mér á steingólf og ég bar hendina fyrir mig...og það er s.s að koma upp aftur verkir og þeir eru helv sárir..get nánast ekkert unnið og heldur ekki farið á hestbak..verð mjög þreytt í hendinni ef ég er búin að vera að nota hana eitthvað að ráði, t.d að skrifa.. er búin að fara til læknis, fyrir rúmum 2 vikum síðan, og fer aftur á morgun eða hinn og þá kemur í ljós hvað ég á að gera..læknirinn nefndi það að ég þyrfti líklega að fara á ak í segulómskoðun og eitthvað þannig dót..
ætla að fara á skagaströnd á þriðjudaginn...ætla upp í kirkjugarð og athuga hvort það sé ekki allt í lagi þar..fara í plokk og lit..hitta Eygló peygló..fara í heimsókn á Breiðablik..frekar langt síðan ég fór síðast og þar sem ég verð í fríi næstu 4 daga ákvað ég að fara bara..
en best að fara að hætta þessu og hvíla sig..
Sóley Magnúsdóttir kveður
30. júní 2008 klukkan 00:45
Sóley Magnúsdóttir 4 athugasemdir
Hjúskaparstađa: laus og liđug, ok kannski ekki liđug en á lausu
Um mig: Ég er 22 ára gömul og bý á HVT núna hjá mömmu minni og kjélllinum hennar honum Helga. ég er uppalin á Skagaströnd og var fínt ađ alast ţar upp :) ...ţegar ég var 21 árs flutti ég međ mömmu á Hvammstanga(HVT) og fluttum í hús sem mamma og helgi keyptu sér.. ţađ er fínt ađ búa hérna hjá ţeim, stundum lítiđ ađ gerast hérna en mađur finnur sér ţá eitthvađ ađ gera..ég ćtla ađ vera međ hesta eftir áramót, alla vega tvćr merar..verđ svo ađ vinna eitthvađ á spítalanum..
annars er ég bara hress manneskja sem nýtur ţess ađ fá ađ lifa og eiga gott líf :)